Arm Strong Basket delivery down Email flash Keep Cool Kid Cosy life-proof-lens lock measure menu mosquitoes next open-eyes Paypal phone previous Rain Away search spf squiggle-l squiggle Selected tumblr Twinkle Twinkle UPF 50 uv-400 YouTube

Free UK Delivery

Hat Tech

Krakkahúfurnar okkar eru ekki bara fallegar. Þær eru líka leiðandi í snjallri hönnun. Við notum nýstárleg efni og heildræna hönnunarnálgun til að búa til húfur sem eru algjörlega einstakar. Húfur sem leysa vandann. Little Hotdog Watson húfur eru jafn-praktískar og þær eru flottar.

Við viljum ekki vera eins og allir aðrir. Við viljum vera betri. Því krakkarnir eiga það skilið.

Skoða krakkahúfur

Efni sem veitir mátulegan hita

Hitatemprun

Kemur í veg fyrir að litla fólkinu verði of heitt á höfðinu. Efnið aðlagast aðstæðum til að halda hitastigi barnanna passlegu.

  • Ekki lengur sveitt hár undir húfunni eða hattinum
  • Tækni sem er vottuð fyrir geimfara
  • Mjúkt og þægilegt viðkomu
Vörn gegn útfjólublárri A- og B-geislun

Sólarvörn

Snjöll hönnun sem ver unga húð fyrir skaðlegum útfjólubláum A- og B-geislum upp að stuðlinum 50+

  • Vörn sem endist út líftíma vörunnar
  • Allar húfurnar eru prófaðar samkvæmt breskum öryggisstöðlum
  • Cub-, Adventurer- og Pioneer-hönnun veitir aukna vernd fyrir eyru og háls og uppfyllir BS8466-staðalinn.

Fyrirvari: Sólargeislar geta skaðað húðina. Húfurnar okkar vernda þau svæði sem þær þekja algjörlega, en að minna leyti þau svæði sem þær varpa bara skugga á. Verja ætti þau svæði á andliti og hálsi sem eru í skugga og önnur óvarin svæði líkamans með öflugri sólarvörn.

Burt með bitmýið

Mýfæla

Innbyggð „Buzz Off“ skordýravörn heldur bitmýinu í skefjum. Hjálpar til við að halda bitmýi frá andliti og hálsi.

  • Ekkert DEET-efni, engin lykt
  • Allt að 30 þvottar – eða samsvarandi sundlaugarferðir
  • Hannaðar fyrir viðkvæma húð
Notalegt fyrir börnin

Thinsulate

Thinsulate-fóðringin er mjúk, þægileg og hönnuð til að tryggja notalegheitin fyrir litla kolla.

Skínandi stjörnur

Endurskin

Endurskin hér og þar í húfunni fær litlu stjörnurnar okkar til að skína. Nú er öruggara að fara saman í leiðangra í skammdegisrökkrinu.

Okkur finnst rigningin góð

Vatnsvörn

Vatnsvarið efni í Arctic Cub-vetrarhúfunum okkar heldur litlum ævintýragörpum þurrum.

100% bómull

Hágæðaefni

Better Cotton Initiative (BCI) 100% bómullin okkar er ofin í sólarknúinni verksmiðju.
Við framleiðum fíngert en þéttofið efni sem andar og er létt og þægilegt.

Prófun

Allar húfurnar okkar eru prófaðar samkvæmt ströngustu öryggisstöðlum í Bretlandi og Evrópu til að tryggja sem vandaðastar vörur fyrir smáfólkið.

Engin perflúorkolefni (PFC) eru notuð í vörum okkar.

Um okkur

Saga okkar

Frá árinu 2016 höfum við framleitt barnafatnað með gott siðferði að leiðarljósi, sem sameinar stíl og nýsköpun.



Markmið okkar er að framleiða bestu húfurnar. Einu húfurnar sem börnin þín munu þurfa. Nú þarf ekki lengur að kaupa margar lélegar húfur sem endast ekki eða líta ekki vel út. Bara eina frábæra húfu sem barnið elskar.

Watch our winter hat technology video
Watch pour summer hat technology video
 
Winter Hats For Kids

Skoða vetrarfatnað

Skoða sumarfatnað

Sun Hats For Kids + Adults

Fresh ideas straight to your inbox

Adventurers who sign up to our Fresh Air Club get access to our monthly newsletter packed with activities + 10% off your first order.